Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan

20. apríl 2010 klukkan 09:13

Eitt video er betra en ekki neitt.

02. mars 2010 klukkan 13:01

Enn á leiðinni

05. janúar 2010 klukkan 00:06
Já, ég veit að ég lofaði bloggi fyrr á árinu og það er enn á leiðinni. Hver veit nema eitthvað gæti birst í lok mánaðarins. En svona ef ykkur leiðist þá getið þið kíkt á þetta hér á meðan 
http://bloggheimar.is/jakvaett/ 

Prufa

13. nóvember 2009 klukkan 09:56
Já ég veit, ég sagði í sept að það væri blogg á leiðinni og það er enn á leiðinni og kemur þegar það kemur .

En þetta hér fyrir neðan er bara smá prufa á korti sem ég er gera fyrir verkefnið mitt.


View Attraktioner in a larger map

Blogg vændum..

03. september 2009 klukkan 10:59
?????

GSM

30. júní 2009 klukkan 17:39
Bara að láta að vita að íslenska gsm númerið mitt er komið í samband. Sama gamla númerið 898 -57xx

3 dagar

25. júní 2009 klukkan 08:07
Þá er bara þrír dagar til baka (eins og krakkarnir segja) þangað til að við komum heim á klakann. Það er hálfger synd að yfirgefa veðrið hérna og koma heim í veðrið heima, eins og það hefur verið. En annars skiptir það minnstu máli því það verður frábært að komast heim í nokkrar vikur og hitta fjölskyldu og vini. Hlakka mikið til.


Eins og flestir vita, þá gekk það ekki eftir að ég fengi að vinna upp í Gufunesi í sumar. Ég grét það svosem ekki mikið nema það hefði náttúrlega verið fínt að fá peninginn. Ég var semsagt kominn í þann gírinn að gera ekki neitt í sumar en nú hefur mér verið komið til bjargar og ég mun starfa a.m.k. í mánuð við sumarafleysingar nýjum verkstæðiskjarna á Sauðárkróki, þar sem einnig verður verslun með tölvuvörur o.fl.. 
Við komum heim á sunnudaginn og verðum þá vikur fyrir sunnan en förum svo norður. En auðvitað reynum við að kíkja eitthvað suður um helgar og ná einhverjum skemmtilegum hittingum.

Prófin eru búinn en ég er ekki búinn að fá einkunnir nema fyrir annar verkefnið. Fékk ekki þá einkunn fyrir verkefnið sem ég vonaðist eftir. Ég er ekki alveg sáttur við þá niðurstöðu og á því fund í dag með leiðbeinandanum og sjáum svo til hvað kemur út úr því.

Annars er allt gott að frétta héðan, veðrið frábært, krakkarnir hressir, bjórinn kaldur, ódýrara að kaupa nýja rakvél með fimm blöðum en að kaupa fjögur blöð í þá gömlu, förum í útskriftarveislu/afmæli á föstudaginn, verið undirbúa heimferð...... o.s.frv.    Þannig að það er nóg að gera.

Sjáumst vonandi sem flest í næstu viku.

Stutt og laggott

13. júní 2009 klukkan 20:24
Jæja, fyrsta prófið kláraðist á miðvikudaginn, það næsta er á þriðjudaginn og það síðasta, mánudaginn 22. júní.

Eftir það er svo bara að pakka því að fyrir þá sem ekki vita, þá verðum við heima í sumar, frá 28. Júní til 16. Ágúst.

Hlakka mikið til að hitta alla.

Gef mér kannski einhvern tíma í meira blogg áður en við komum heim.

Circus Arena

10. maí 2009 klukkan 20:06
Það hefur ýmislegt verið að veltast um í kollinum á mér sem mig hefur langað til að skrifa um.  Ég hef hinsvegar verið MJÖG latur við að blogga og er það enn. Má samt til með að segja frá því að við fórum í sirkus í dag með krakkana og það var hin besta skemmtun. Krakkarni fengu að fara á fílsbak og hér að neðan er smá myndband af því.

Danssnillingur

30. apríl 2009 klukkan 08:18
Ég þarf greinilega að fara að æfa Ástrós og Jónþór í dansinum. Guttinn í myndbandinu hérna er aðeins sjö ára.

Veðrið í Álaborg

Innskráningar kubbur