Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan

3 dagar

25. júní 2009 klukkan 08:07
Þá er bara þrír dagar til baka (eins og krakkarnir segja) þangað til að við komum heim á klakann. Það er hálfger synd að yfirgefa veðrið hérna og koma heim í veðrið heima, eins og það hefur verið. En annars skiptir það minnstu máli því það verður frábært að komast heim í nokkrar vikur og hitta fjölskyldu og vini. Hlakka mikið til.


Eins og flestir vita, þá gekk það ekki eftir að ég fengi að vinna upp í Gufunesi í sumar. Ég grét það svosem ekki mikið nema það hefði náttúrlega verið fínt að fá peninginn. Ég var semsagt kominn í þann gírinn að gera ekki neitt í sumar en nú hefur mér verið komið til bjargar og ég mun starfa a.m.k. í mánuð við sumarafleysingar nýjum verkstæðiskjarna á Sauðárkróki, þar sem einnig verður verslun með tölvuvörur o.fl.. 
Við komum heim á sunnudaginn og verðum þá vikur fyrir sunnan en förum svo norður. En auðvitað reynum við að kíkja eitthvað suður um helgar og ná einhverjum skemmtilegum hittingum.

Prófin eru búinn en ég er ekki búinn að fá einkunnir nema fyrir annar verkefnið. Fékk ekki þá einkunn fyrir verkefnið sem ég vonaðist eftir. Ég er ekki alveg sáttur við þá niðurstöðu og á því fund í dag með leiðbeinandanum og sjáum svo til hvað kemur út úr því.

Annars er allt gott að frétta héðan, veðrið frábært, krakkarnir hressir, bjórinn kaldur, ódýrara að kaupa nýja rakvél með fimm blöðum en að kaupa fjögur blöð í þá gömlu, förum í útskriftarveislu/afmæli á föstudaginn, verið undirbúa heimferð...... o.s.frv.    Þannig að það er nóg að gera.

Sjáumst vonandi sem flest í næstu viku.
 
melkorka
getur keypt fyrir mig rakvél með 6 blöðum og tekið þá gömlu uppí
kv korka
#1
25. júní 2009 klukkan 17:02
 
Ingó
10 blöð og tvær rakvélar, get ekki boðið betur
#2
26. júní 2009 klukkan 08:21

Skrifa athugasemd

Veðrið í Álaborg

Innskráningar kubbur