Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan

Enn á leiðinni

05. janúar 2010 klukkan 00:06
Já, ég veit að ég lofaði bloggi fyrr á árinu og það er enn á leiðinni. Hver veit nema eitthvað gæti birst í lok mánaðarins. En svona ef ykkur leiðist þá getið þið kíkt á þetta hér á meðan 
http://bloggheimar.is/jakvaett/ 

Prufa

13. nóvember 2009 klukkan 09:56
Já ég veit, ég sagði í sept að það væri blogg á leiðinni og það er enn á leiðinni og kemur þegar það kemur .

En þetta hér fyrir neðan er bara smá prufa á korti sem ég er gera fyrir verkefnið mitt.


View Attraktioner in a larger map

GSM

30. júní 2009 klukkan 17:39
Bara að láta að vita að íslenska gsm númerið mitt er komið í samband. Sama gamla númerið 898 -57xx

3 dagar

25. júní 2009 klukkan 08:07
Þá er bara þrír dagar til baka (eins og krakkarnir segja) þangað til að við komum heim á klakann. Það er hálfger synd að yfirgefa veðrið hérna og koma heim í veðrið heima, eins og það hefur verið. En annars skiptir það minnstu máli því það verður frábært að komast heim í nokkrar vikur og hitta fjölskyldu og vini. Hlakka mikið til.


Eins og flestir vita, þá gekk það ekki eftir að ég fengi að vinna upp í Gufunesi í sumar. Ég grét það svosem ekki mikið nema það hefði náttúrlega verið fínt að fá peninginn. Ég var semsagt kominn í þann gírinn að gera ekki neitt í sumar en nú hefur mér verið komið til bjargar og ég mun starfa a.m.k. í mánuð við sumarafleysingar nýjum verkstæðiskjarna á Sauðárkróki, þar sem einnig verður verslun með tölvuvörur o.fl.. 
Við komum heim á sunnudaginn og verðum þá vikur fyrir sunnan en förum svo norður. En auðvitað reynum við að kíkja eitthvað suður um helgar og ná einhverjum skemmtilegum hittingum.

Prófin eru búinn en ég er ekki búinn að fá einkunnir nema fyrir annar verkefnið. Fékk ekki þá einkunn fyrir verkefnið sem ég vonaðist eftir. Ég er ekki alveg sáttur við þá niðurstöðu og á því fund í dag með leiðbeinandanum og sjáum svo til hvað kemur út úr því.

Annars er allt gott að frétta héðan, veðrið frábært, krakkarnir hressir, bjórinn kaldur, ódýrara að kaupa nýja rakvél með fimm blöðum en að kaupa fjögur blöð í þá gömlu, förum í útskriftarveislu/afmæli á föstudaginn, verið undirbúa heimferð...... o.s.frv.    Þannig að það er nóg að gera.

Sjáumst vonandi sem flest í næstu viku.

Stutt og laggott

13. júní 2009 klukkan 20:24
Jæja, fyrsta prófið kláraðist á miðvikudaginn, það næsta er á þriðjudaginn og það síðasta, mánudaginn 22. júní.

Eftir það er svo bara að pakka því að fyrir þá sem ekki vita, þá verðum við heima í sumar, frá 28. Júní til 16. Ágúst.

Hlakka mikið til að hitta alla.

Gef mér kannski einhvern tíma í meira blogg áður en við komum heim.

Danssnillingur

30. apríl 2009 klukkan 08:18
Ég þarf greinilega að fara að æfa Ástrós og Jónþór í dansinum. Guttinn í myndbandinu hérna er aðeins sjö ára.

Betra en ekki neitt

27. apríl 2009 klukkan 20:39
Photo Effects. Reading News Photo Effects. Laforet Photo Effects. Giorgio Armani Ads Photo Effects. Milo Ventimiglia

GLEÐILEGA PÁSKA

12. apríl 2009 klukkan 07:27
GLEÐILEGA PÁSKA

Opið allan sólarhringinn í Hagkaupum

28. nóvember 2008 klukkan 13:55
mynd

Hægt verður að versla jólagjafirnar, steikina og skrautið um miðjar nætur í desember. Verslun Hagkaups í Skeifunni verður opin allan sólarhringinn frá og með deginum í dag og fram að jólum hið minnsta.

Í tilkynningu frá Hagkaupi segir að þetta sé gert að óskum viðskiptavina. Opnunartíminn verður með þessum hætti fram að jólum, en ef vel gengur verði þessu haldið áfram á nýju ári.(heimild: visir.is)


Ég trúi því ekki að það sé eftirspurn eftir því að geta verslað jólagjafirnar á næturnar. Eins og ástandið er bjóst maður líka við því að sjá allt annað en að Hagkaup hefði opið allan sólarhringinn.  Hér í Danmörku hafa verslanir tekið það skref að hafa opið alla sunnudaga fram að jólum.......

James Bond

14. nóvember 2008 klukkan 11:07
Sá þetta á Visi.is í dag og er náttúrulega algjör snilld.





Veðrið í Álaborg

Innskráningar kubbur